Meðferð persónuupplýsinga og réttindi skráðra.
Samkvæmt reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR) og lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 eiga skráðir einstaklingar rétt á upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga sinna hjá HÆ og geta farið fram á aðgang að þeim.
Yfirlit yfir réttindi einstaklinga.
Erindum er svarað innan 30 daga frá móttöku.
- Aðgangur að gögnum: Beiðni um afrit af þeim persónuupplýsingum sem HÆ vinnur um viðkomandi.
- Leiðrétting: Beiðni um að rangar eða ófullkomnar upplýsingar verði leiðréttar.
- Eyðing: Beiðni um eyðingu gagna. Undantekningar eiga við um gögn sem varðveita ber samkvæmt lögum (t.d. bókhaldsgögn í 7 ár).
- Takmörkun á vinnslu: Beiðni um að vinnsla gagna sé stöðvuð tímabundið á meðan mál er til skoðunar.
- Flutningur gagna: Beiðni um að fá afhentar upplýsingar á tölvulesanlegu formi (gagnaflutningsréttur).
- Afturköllun samþykkis: Heimild til að draga til baka áður veitt samþykki fyrir vinnslu.
- Andmæli: Réttur til að andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum samtakanna.
Ítarlegri umfjöllun um réttindi skráðra má nálgast í persónuverndarstefnu HÆ.
Persónuverndarbeiðni.
Vinsamlegast fyllið út formið. Móttaka er staðfest innan fimm virkra daga.
Staðfestu netfangið til að ljúka beiðninni.
Við höfum sent staðfestingarpóst á netfangið þitt. Smelltu á hlekkinn til að ljúka beiðninni. Hlekkurinn gildir í 48 klukkustundir. Að staðfestingu lokinni hefur HÆ samband innan fimm virkra daga til að staðfesta móttöku og svarar formlega eigi síðar en innan 30 daga.
Móttaka beiðna í tölvupósti.
Einnig er unnt að senda persónuverndarbeiðnir beint á netfangið personuvernd@
Kvörtun til Persónuverndar.
Einstaklingar sem telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra hjá HÆ brjóti í bága við gildandi persónuverndarlöggjöf eiga rétt á að beina kvörtun til Persónuverndar:
Persónuvernd
Rauðarárstíg 10
105 Reykjavík
Sími: 510 9600
Netfang: postur@
Vefsvæði: personuvernd.is