Siðareglur og meðferð ábendinga.
Samtökin starfa eftir skýrum viðmiðum um fagleg vinnubrögð og tryggja formlegt ferli til móttöku og úrvinnslu kvartana og ábendinga, jafnt frá fólki innan samtakanna sem utanaðkomandi.
Gildissvið og viðmið
Siðareglur HÆ taka til allra aðila sem koma fram fyrir hönd samtakanna; þ.m.t. stjórnarmanna, framkvæmdastjóra, starfsmanna, sjálfboðaliða og fulltrúa í fagráði. Reglurnar kveða á um sjálfstæði, meðferð hagsmunaárekstra, gagnameðferð, fagleg samskipti og kröfur um gagnsæi.
Meginviðmið:
- Sjálfstæði — Samtökin þiggja ekki framlög sem geta skert óhæði og sjálfstæði í starfi.
- Hlutlægni og staðreyndir — Opinber málflutningur skal ávallt byggja á sannreyndum gögnum og heimildum.
- Hagsmunir barna í forgangi — Velferð og hagsmunir barna og ungmenna eru ætíð leiðarljós starfseminnar, framar hagsmunum stjórnsýslu eða stofnana.
- Hagsmunaárekstrar — Skylt er að gera grein fyrir mögulegum hagsmunaárekstrum áður en ákvarðanir eru teknar.
- Fagleg samskipti — Framkoma skal einkennast af virðingu og fagmennsku, óháð málefnalegum ágreiningi.
- Trúnaður — Fyllsta trúnaðar skal gætt við meðferð og vinnslu persónuupplýsinga og viðkvæmra gagna.
Heildarútgáfu siðareglna má nálgast hér: Siðareglur HÆ — A2.5 (PDF).
Hægt er að koma ábendingum og athugasemdum um siðareglurnar á framfæri á
netfangið abendingar@
Móttaka og úrvinnsla kvartana og ábendinga
Séu aðilar tengdir HÆ sakaðir um brot á siðareglum eða ófaglega framkomu í samskiptum, skulu tilkynningar eða kvartanir meðhöndlaðar samkvæmt eftirfarandi ferli:
1. Skil á tilkynningu
Erindum skal beint á netfangið abendingar@
Heimilt er að skila inn tilkynningu undir nafni eða nafnlaust. Tekið er fram að nafnlausar tilkynningar geta sett úrvinnslu skorður, en þær eru ávallt teknar til formlegrar skoðunar.
2. Staðfesting á móttöku
Móttaka erindis er staðfest innan fimm virkra daga, og þá er jafnframt upplýst um fyrirhugaða málsmeðferð. Sé tilkynning lögð fram nafnlaust er móttaka ekki staðfest með beinum hætti, en greint er frá niðurstöðum opinberlega ef það á við.
3. Rannsókn og rýni
Stjórn, eða sérstök undirnefnd, tekur málið til formlegrar skoðunar. Eftir atvikum er leitað til utanaðkomandi og óháðra ráðgjafa (t.d. lögfræðinga) þegar erindi eru viðamikil eða varða sitjandi stjórnarmenn. Tryggt er að hlutaðeigandi fái tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
4. Lyktir máls
Að úrvinnslu lokinni er niðurstaða kynnt tilkynnanda, að því gefnu að viðkomandi sé þekktur. Ef erindið snýr að siðareglum er ópersónugreinanleg samantekt birt í ársskýrslu. Staðfest brot geta leitt til áminningar, breytinga á verklagi, uppsagnar úr trúnaðarstöðu eða formlegrar tilkynningar til viðeigandi stjórnvalda, eftir alvarleika brots.
Nánari útlistun á ferlinu má finna í eftirfarandi skjali: Kvartana- og kæruferli — A2.6 (PDF).
Vernd uppljóstrara og tilkynnenda
Samtökin tryggja vernd tilkynnenda sem koma á framfæri upplýsingum í góðri trú. Slíkar tilkynningar munu undir engum kringumstæðum leiða til neikvæðra afleiðinga, á borð við starfslok eða brottvikningu úr trúnaðarstörfum. Verði tilkynnandi fyrir gagnráðstöfunum skal litið á slíkt sem sjálfstætt brot á reglum samtakanna sem sætir viðeigandi meðferð.
Eftir eðli máls er unnt að vísa ábendingum til opinberra aðila, svo sem til Persónuverndar, þegar erindi varðar vinnslu persónuupplýsinga, eða til umboðsmanns barna, varði málið hagsmuni eða velferð barna.