Styðjið starfið

Styrkja starfið.

Þitt framlag tryggir óháða upplýsingaöflun í þágu barna.

Við getum ekki lagað það sem við skiljum ekki. Óháð upplýsingaöflun er undirstaða úrbóta, en hún er kostnaðarsöm. Starfið er enn sem komið er alfarið fjármagnað með frjálsum framlögum. Óhæði okkar er tryggt með skýrum reglum, ekki með uppruna fjármagnsins: engin framlög fylgja skilyrðum um niðurstöður okkar eða málflutning, ekkert eitt framlag fer með ráðandi hlut og heildartölur fjármögnunar eru birtar í ársreikningi. Þitt framlag gerir okkur kleift að starfa sem óháður málsvari.

Einstaklingsstuðningur

Greiðsluleiðir.

Þú getur valið á milli þess að styðja okkur með eingreiðslu eða mánaðarlegum framlögum. Allur stuðningur fer beint í kjarnastarfsemi samtakanna: að safna gögnum, greina kerfið og veita stjórnvöldum aðhald.

  • Eingreiðsla: Bein leið til að styðja starfið strax.
  • Mánaðarleg framlög: Tryggja okkur fyrirsjáanleika og stöðugleika til að halda úti langtímavinnu.
Af hverju að styðja okkur?

Fjórar ástæður fyrir stuðningi við starfið.

Við söfnum því sem er til, á einn stað

Í dag eru upplýsingar um börn dreifðar á mörg kerfi og tugi stofnana, og heildin er hvergi tekin saman. Með þínum stuðningi kortleggjum við ábyrgðina, söfnum gögnunum saman og greinum hvar kerfið brestur.

Við fylgjum loforðum eftir

Söfnun er bara byrjunin. Framlögin standa undir vöktun á ákvörðunum og fjárveitingum, svo að sjá megi svart á hvítu hvað er ákveðið, hvað er efnt og hvað breytist í raun. Loforð sem er gefið á ekki að gleymast þegar kastljósið færist annað.

Við hlustum á fólkið á gólfinu

Gögnin okkar eru ekki bara tölur á blaði. Fagfólk sem starfar með börnum dagsdaglega segir okkur hvar á að leita og hvernig kerfið birtist í framkvæmd, og stuðningur þinn gerir okkur kleift að dýpka þá greiningarvinnu.

Sjálfstæði og gagnsæi

Framlag þitt ver rödd okkar fyrir utanaðkomandi þrýstingi. Við förum vel með hverja krónu; öllum framlögum er ráðstafað beint í kjarnastarfsemi og þau eru gerð sýnileg í ársreikningi samtakanna.

Sjá nánar um fjármál og gagnsæi →

Millifærsla

Beinn stuðningur og stærri framlög.

Millifærsla er hentug leið fyrir þau sem vilja styrkja starfið beint og er jafnframt sú leið sem fyrirtæki, stofnanir og sjóðir nýta gjarnan.

Viðtakandi
Hagsmunasamtök Æskunnar
Kennitala
600426-0600
Banki / reikningsnúmer
0515-26-015645
Reiknivél

Hvað kostar framlagið þig raunverulega?

Hér sérðu hvað framlagið kostar þig í raun þegar skattafrádrátturinn hefur verið dreginn frá. Reiknivélin sýnir þér muninn á því sem þú gefur og því sem þú færð til baka í formi lægri skatta.

  • Einstaklingar: Fá skattafrádrátt af allt að 350.000 kr. á ári.
  • Sjálfvirkt: Við sjáum um að koma upplýsingunum til Skattsins svo framlagið birtist sjálfkrafa á skattframtalinu þínu.
kr./mán.

Frekari upplýsingar um skattþrep má nálgast hjá Skattinum.

Heildarframlag á ári
120.000 kr.
Skattafsláttur
45.588 kr.
Raunkostnaður á ári
74.412 kr.
Raunkostnaður á mánuði
6.201 kr.
Lágmarksframlag til skattafrádráttar er 10.000 kr. á ári.
Hámarki skattafrádráttar hefur verið náð (350.000 kr. á ári). Ekki er veittur skattafrádráttur vegna umframupphæðar.

Reiknivélin er til leiðbeiningar; raunverulegur frádráttur reiknast af Skattinum samkvæmt skattþrepum þínum á hverjum tíma.

Skattafrádráttur

Reglur og lagarammi um framlög.

Einstaklingar sem styðja almannaheillastarfsemi eiga rétt á skattafrádrætti af framlögum sínum. Ferlið er einfalt: Frádrátturinn er framkvæmdur sjálfkrafa við álagningu, þar sem við sjáum um að senda nauðsynlegar upplýsingar til Skattsins (svo framarlega sem kennitala framlagsveitanda liggur fyrir).

Helstu viðmið

  • Hámark frádráttar: 350.000 kr. á ári hjá hverjum einstaklingi.
  • Lágmark til afsláttar: Framlög verða að ná samtals 10.000 kr. á ári til að veita rétt til afsláttar.
  • Raunafsláttur: Afslátturinn samsvarar tekjuskatti í þínu skattþrepi, eða á bilinu 31,49%–46,29% af upphæð framlagsins.
  • Hjón og sambúðarfólk: Hámarkið er samtals 700.000 kr. á ári, en hvor einstaklingur nýtir sinn eigin 350.000 kr. stofn (frádrátturinn er ekki millifæranlegur á milli maka).
Dæmi: 10.000 kr./mán.120.000 kr./ári
Sparnaður (skattafsláttur)u.þ.b. 45.588 kr.
Raunkostnaður þinnu.þ.b. 74.412 kr./ári
ÚtreikningurMiðað við 37,99% meðalþrep (þrep 2). Sjá reiknivél fyrir þitt skattþrep.

Lagarammi og gildi

Réttur til frádráttar byggir á 7. tölul. A-liðar 30. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Fyrirtæki: Fyrirtæki fylgja öðrum reglum og geta dregið framlög frá tekjum sínum sem nema allt að 1,5% af rekstrartekjum (allt að 3% ef hluti framlagsins fer í kolefnisjöfnun). Nánar fyrir fyrirtæki →

Ráðstöfun fjármuna

Stofnfasi 2026.

Á fyrsta starfsári okkar leggjum við mikla vinnu í að smíða gagnagrunna, koma upp innri kerfum og tryggja daglegan rekstur. Þessi uppbygging er að stærstum hluta unnin innanhúss. Hlutföllin í dag endurspegla þennan stofnkostnað, en þau munu breytast strax og grunnurinn er kominn:

  • Rekstrar- og stofnkostnaður (u.þ.b. 80%): Launakostnaður við uppbyggingu innviða, kerfis- og hugbúnaðarþróun, bókhald, lögfræðiþjónustu og almennan rekstur.
  • Verkefnakostnaður (u.þ.b. 10%): Fyrsta gagnaöflun, greiningarvinna og miðlun á efni.
  • Varasjóður (u.þ.b. 10%): Settur til hliðar til að mæta óvæntum útgjöldum í upphafi starfseminnar.

Markmið okkar fyrir starfsárið 2027 er að þetta hlutfall snúist við; að verkefnakostnaður verði í forgangi og fari í 70% eða meira þegar innviðirnir eru að fullu tilbúnir. Nákvæm sundurliðun á rauntölum birtist í ársreikningi fyrir árið 2026 (gefinn út fyrir 30. júní 2027).

Sjá nánar á gagnsæissíðu →

Öryggi og persónuvernd

Við förum með öll gögn af varfærni.

  • Nafnleynd: Einstakir gefendur eru ekki nafngreindir opinberlega. Ársreikningur sýnir heildartölur, ekki nöfn; nafnleynd gagnvart almenningi er sjálfgefin og þarf ekki að óska eftir henni.
  • Skattafrádráttur: Til þess að við getum tilkynnt framlag þitt til Skattsins (svo þú fáir afsláttinn sjálfkrafa á skattframtalið) þurfum við að skrá kennitölu þína.
  • Varðveisla: Við geymum kennitölur og greiðsluupplýsingar í sjö ár, eins og lög um bókhald og skatta krefjast.
  • Þín réttindi: Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að tryggja rétta skráningu framlaga. Þú getur hvenær sem er óskað eftir upplýsingum um þín gögn eða neytt réttinda þinna samkvæmt persónuverndarlögum.

Sjá persónuverndarstefnu í heild sinni →