Merki og fjölmiðlaefni.
Allt sem fjölmiðlar þurfa til að birta merki Hagsmunasamtaka Æskunnar rétt — merkið á gegnsæjum grunni, í hárri upplausn og sem vektor (SVG), ásamt litum, letri og notkunarreglum.
Lárétt merki er grunnurinn.
Lárétta útgáfan er aðalmerkið. „HÆ“-reiturinn má standa einn þar sem plássið er lítið — til dæmis sem prófílmynd eða favicon. Merkið er sett í Fraunces og skal aldrei endurteiknað eða skrifað í öðru letri.
Merkið til niðurhals.
Hvert form fylgir í dökkri og ljósri útgáfu, bæði sem SVG (vektor — kvarðast óendanlega, letrið innbyggt) og PNG (gegnsær grunnur, há upplausn). „Dökk“ er ætluð fyrir ljósan grunn, „ljós“ fyrir dökkan.
- Lárétt merki · dökkReitur + nafn, fyrir ljósan grunn SVG PNG
- Lárétt merki · ljósReitur + nafn, fyrir dökkan grunn SVG PNG
- Stöfluð útgáfa · dökkReitur yfir nafni, fyrir ljósan grunn SVG PNG
- Stöfluð útgáfa · ljósReitur yfir nafni, fyrir dökkan grunn SVG PNG
- „HÆ“-reitur · dökkTákn / favicon, fyrir ljósan grunn SVG PNG
- „HÆ“-reitur · ljósTákn / favicon, fyrir dökkan grunn SVG PNG
Skráarnöfn enda á .svg og .png. „dökk“ = teal-merki fyrir ljósan grunn, „ljós“ = cream-merki fyrir dökkan grunn.
Fjarlægð og lágmarksstærð.
Gefið merkinu rými og birtið það aldrei minna en svo að nafnið haldist læsilegt.
Haldið fríu svæði umhverfis merkið sem nemur a.m.k. helmingi af hæð „HÆ“-reitsins. Ekkert letur eða grafík má fara inn á það svæði.
/ 32 mm breitt
Undir lágmarksstærð verður nafnið ólæsilegt — notið þá „HÆ“-reitinn einan.
Passið upp á merkið.
Merkið er birt óbreytt. Þessar breytingar má aldrei gera.
Notið aldrei bakgrunnsútgáfu (fylltan flöt með merkinu) sem merki í fjölmiðlaumbroti — notið gegnsæju skrárnar hér að ofan.
Litapalletta.
Teal er aðalliturinn. Terracotta og amber eru notuð sparlega til áherslu.
Letur samtakanna.
Tvö letur bera merkið og efni vefsins.
Um Hagsmunasamtök Æskunnar.
Hagsmunasamtök Æskunnar (HÆ) eru óháð almannaheillasamtök sem vinna fyrir börn á Íslandi. Það sem við byggjum upp á að nýtast félögunum sem sinna börnum beint.
Við byggjum upp óháða heildarmynd af stöðu barna á Íslandi og berum loforð stjórnvalda um börn saman við efndir. Við veitum hvorki beina þjónustu né neyðaraðstoð.
Tilbúnir kynningartextar.
Þrjár lengdir af kynningartexta um samtökin, tilbúnar til birtingar. Smelltu til að opna og afrita.
Kynningartexti í 50 orðum
Hagsmunasamtök Æskunnar (HÆ) eru óháð almannaheillasamtök sem leita svara við einni spurningu: Hvernig hafa börn það á Íslandi? Við ætlum að byggja upp safn opinberra gagna um velferð barna á einum stað. Með því viljum við sýna hvar kerfið bregst börnum og fylgja því eftir að loforð stjórnvalda skili sér í umbótum.
Kynningartexti í 150 orðum
Hagsmunasamtök Æskunnar (HÆ) eru óháð almannaheillasamtök, stofnuð árið 2026, sem vinna að réttindum og velferð barna á Íslandi. Við stofnuðum samtökin af því að málefni barna dreifast á mörg kerfi og stofnanir og upplýsingar um stöðuna eru víða brotakenndar eða óaðgengilegar.
Til að bæta úr því ætlum við að byggja upp gagnagrunn sem safnar opinberum gögnum á einn stað. Starfið er í þremur skrefum: að safna, tengja saman og fylgja eftir. Við ætlum að greina gögnin, veita stjórnvöldum aðhald og sýna hverju var lofað og hvað var efnt. Allt sem við birtum má rekja til opinberra frumheimilda og við birtum ekkert sem fólk hefur ekki farið yfir.
Fyrsta áherslusvið okkar er staða barna með fjölþættan vanda og meðferðarúrræði fyrir börn. Við ætlum að birta afurðirnar í áföngum, til dæmis yfirlitskort yfir ábyrgðarkerfið, lykiltölur yfir tíma og opnar tímalínur yfir efndir stjórnvalda.
Kynningartexti í 300 orðum
Hagsmunasamtök Æskunnar (HÆ) eru óháð almannaheillasamtök sem vinna að réttindum og velferð barna og ungmenna á Íslandi. Við stofnuðum samtökin árið 2026 vegna þess að málefni barna dreifast á fjölmörg kerfi, stofnanir og ráðuneyti. Upplýsingar um velferð barna eru því oft brotakenndar og sjaldan aðgengilegar á einum stað. Við viljum draga saman heildarmyndina.
Starfið er í þremur skrefum: að safna, tengja saman og fylgja eftir. Við ætlum að byggja upp gagnagrunn sem sækir gögn í opnar veitur Alþingis, Stjórnarráðsins og Hagstofunnar. Önnur gögn ætlum við að sækja á grundvelli upplýsingalaga. Hvert skjal á að varðveitast óbreytt, flokkað með Barnasáttmálann að mælistiku og tengt þeim lögum og loforðum sem það varðar. Þannig eiga að verða til tímalínur þar sem bera má loforð stjórnvalda saman við efndir. Við birtum ekkert sem fólk hefur ekki farið yfir, hverri fullyrðingu fylgir rekjanleg frumheimild og við leiðréttum opinberlega þegar okkur skjátlast.
Afurðirnar koma út í áföngum. Sumar, eins og umsagnir og fyrsta gerð Ábyrgðarkortsins, þurfa ekki hugbúnaðinn og aðrar bíða hans. Fyrsta afurðin á að vera Ábyrgðarkortið, heildstætt yfirlit yfir það hver ber ábyrgð á hverju í málefnum barna hjá hinu opinbera. Á eftir fylgja lykiltölur yfir tíma og opnar tímalínur yfir ákvarðanir. Fyrsta áherslusvið okkar er staða barna með fjölþættan vanda og meðferðarúrræði fyrir börn. Nýjum sviðum á að bæta við eftir því sem starfið vex.
Á grunni gagnanna ætlum við að skila umsögnum, kynna niðurstöður fyrir þingnefndum og veita stjórnvöldum aðhald. Afurðirnar eiga að verða opnar fjölmiðlum og rannsakendum. Við lítum á önnur félög í málaflokknum sem samstarfsfélög og viljum deila með þeim greiningum, tækni og gögnum án endurgjalds.
Hafðu samband.
Stefnt er að því að afgreiða erindi fjölmiðla innan dags, eða fyrir hádegi næsta virka dag berist erindi eftir klukkan 16:00.
Alexander Gunnarsson · Framkvæmdastjóri
Netfang: fjolmidlar@
Heimilt er að nota merkið óbreytt í umfjöllun um félagið. Vanti merkið í öðrum útfærslum eða sniðum, hafðu samband.