Stjórn og starfsfólk

Stjórn, starfsfólk og fagráð.

Stjórn samtakanna ber ábyrgð á stefnumótun og eftirliti, en framkvæmdastjóri hefur umsjón með daglegum rekstri. Fagráð starfar sem ráðgefandi aðili við yfirlestur útgáfuefnis og greiningu á kerfinu. Hér er gerð grein fyrir skipulagseiningunum þremur.

Stjórn

Fyrirkomulag stjórnarkjörs.

Stjórn samtakanna er skipuð allt að ellefu fulltrúum: fimm úr opnum sætum og allt að sex úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi. Opnu sætin hafa verið skipuð af aðalfundi; boð um tilnefningu eru að berast ungliðahreyfingunum og nýir stjórnarmenn verða kynntir hér jafnóðum og tilnefningar liggja fyrir.

5 opin sæti

Fagþekking og stöðugleiki

Kjörin af aðalfundi. Einstaklingar og fulltrúar félagasamtaka sem sinna málefnum barna eiga þess kost að bjóða sig fram. Markmiðið er að tryggja að rík fagþekking og reynsla sé varanlega til staðar í stjórn, óháð pólitískum áherslum hverju sinni.

Allt að 6 tilnefnd sæti

Vettvangur fyrir framtíðarstjórnmálafólk

Tilnefnd af ungliðahreyfingum þeirra flokka á Alþingi sem eiga aðild að samtökunum. Tryggir þverpólitískt samstarf og skapar grundvöll fyrir uppbyggingu þekkingar meðal ungs stjórnmálafólks á þessu málasviði.

Varamenn

Áframhaldandi starfhæfni

Almennir varamenn úr opnum sætum leysa af almenna stjórnarmenn. Tilnefndir varamenn leysa eingöngu af fulltrúa úr sínum eigin flokki, þannig að enginn flokkur eigi tvo fulltrúa á sama stjórnarfundi. Varamenn taka sæti þegar til forfalla kemur.

Opin sæti

Fulltrúar úr opnum sætum.

Fulltrúar úr opnum sætum, kjörnir af aðalfundi.

Aðalmenn

Mynd af Pétri Guðmundi Broddasyni

Pétur Guðmundur Broddason

Stjórnarformaður

Pétur Guðmundur Broddason er með BA-gráðu í sálfræði og diplóma í farsæld barna. Hann er málstjóri farsældar hjá Reykjavíkurborg og þekkir framkvæmd farsældarlaganna úr daglegu starfi. Áður stýrði hann meðferðarheimilinu að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit í fjórtán ár, þar sem dvöldu stúlkur á aldrinum þrettán til átján ára með fjölþættan vanda. Hann hefur innleitt gagnreyndar meðferðir og unnið með helstu stofnunum barnaverndarkerfisins.

Mynd af Lilju Björk Guðrúnardóttur

Lilja Björk Guðrúnardóttir

Stjórnarmaður

Lilja Björk Guðrúnardóttir er félagsráðgjafi með diplóma í áfengis- og vímuefnamálum. Hún leiðir meðferðarteymi barnaverndarþjónustu Kópavogs og situr í stjórnendateymi þjónustunnar. Hún hefur níu ára reynslu af barnavernd, fyrst hjá Barnavernd Reykjavíkur og frá 2021 í Kópavogi. Hún hefur einkum sinnt málum unglinga sem sýna áhættuhegðun og unnið með unglingunum sjálfum, fjölskyldum þeirra og þeim úrræðum sem bjóðast.

Mynd af Sigrúnu Sigurðardóttur

Sigrún Sigurðardóttir

Stjórnarmaður

Sigrún Sigurðardóttir er með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði. Hún er dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri, rannsakar áhrif ofbeldis í æsku á líf og heilsu á fullorðinsárum og hefur umsjón með meistaranámskeiðum um sálræn áföll og áfallamiðaða nálgun. Áður starfaði hún meðal annars sem lögregluþjónn og hjúkrunarfræðingur. Hún hefur komið að félagasamtökum á borð við Gæfuspor, Rannsóknamiðstöð gegn ofbeldi við HA, Bergið headspace, Geðhjálp og Bjarmahlíð, sem stofnandi eða í stjórn og fagráði.

Mynd af Guðmundi Fylkissyni

Guðmundur Fylkisson

Stjórnarmaður

Guðmundur Fylkisson er lögreglumaður með fjörutíu ára starfsreynslu. Hann hefur sérhæft sig í leit að týndum börnum í rúm ellefu ár og sinnti nærri fjögur hundruð leitarbeiðnum árið 2025. Hann hefur setið í stjórn Bergsins headspace frá upphafi. Í starfi sínu hefur hann kynnst samspili skólakerfis, heilbrigðiskerfis, barnaverndar og félagsþjónustu og þeim ágöllum sem þar eru.

Mynd af Berglindi Gunnarsdóttur Strandberg

Berglind Gunnarsdóttir Strandberg

Stjórnarmaður

Berglind Gunnarsdóttir Strandberg er með Cand.Pæd.Psych.-gráðu frá Danmarks Pædagogiske Universitet og diplóma í hugrænni atferlismeðferð. Hún er framkvæmdastjóri Foreldrahúss og hefur gegnt því starfi frá ársbyrjun 2019. Áður var hún stjórnarformaður Vímulausrar æsku-Foreldrahúss og sáttamaður og sérfræðingur í málefnum barna hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur langa reynslu af vinnu með börnum og unglingum á grunnskólaaldri sem glíma við persónulegan eða félagslegan vanda og af ráðgjöf við foreldra og fagfólk.

Almennir varamenn

Almennir varamenn leysa af almenna stjórnarmenn þegar til forfalla kemur.

Mynd af Antoni Stefánssyni

Anton Stefánsson

Varamaður

Anton Stefánsson er uppalinn á Djúpavogi og kemur að verkefninu með reynslu sem foreldri sem hefur þurft að leita eftir þjónustu og úrræðum hjá ólíkum stofnunum. Í gegnum þá reynslu hefur hann kynnst því af eigin raun hvernig kerfið getur bæði hjálpað fólki vel en einnig hversu flókið og þungt það getur verið þegar samvinna og upplýsingaflæði milli aðila er ekki nægilega gott.

Honum er sérstaklega umhugað um að einstaklingar og fjölskyldur fái stuðning fyrr, aðgengið að þjónustu verði einfaldara og að stofnanir vinni betur saman. Anton telur mikilvægt að reynsla fólks sem fer í gegnum kerfið fái meira vægi þegar verið er að þróa þjónustu og taka ákvarðanir sem hafa áhrif á líf þeirra.

Tveir almennir varamenn til viðbótar verða kynntir þegar kjör liggur fyrir.

Tilnefnd sæti

Ungliðahreyfingar flokka með sæti á Alþingi.

Tilnefningar úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi eru í vinnslu og verða birtar þegar þær liggja fyrir.

Allt að 6 sæti, tilnefnd af ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi. Ungliðahreyfingar stjórnarflokka eiga forgang og eftirstandandi sæti bjóðast ungliðahreyfingum stjórnarandstöðuflokka í hlutfalli við þingsæti móðurflokkanna. Samtökin hafa hlotið skráningu á almannaheillaskrá, boð um tilnefningu eru að berast ungliðahreyfingunum og niðurstaðan verður kynnt opinberlega þegar hún liggur fyrir.

Tilnefndir varamenn: allt að 6

Tilnefndir varamenn leysa eingöngu af fulltrúa úr sínum eigin flokki, þannig að enginn flokkur eigi tvo fulltrúa á sama stjórnarfundi. Tilnefningar eru í vinnslu.

Innra skipulag

Embætti stjórnar.

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kýs stjórnin úr sínum hópi eftirfarandi embætti:

  • Formaður: Úr röðum fulltrúa opinna sæta.
  • Varaformaður: Án takmarkana um sæti.
  • Ritari: Án takmarkana um sæti.
  • Gjaldkeri: Úr röðum fulltrúa opinna sæta.
Stjórnarsamsetning og rökstuðningur

Tvískipt stjórn.

Stjórn Hagsmunasamtaka Æskunnar samanstendur af allt að ellefu fulltrúum sem skiptast í tvo hópa. Þessari samsetningu er ætlað að tryggja annars vegar faglegan stöðugleika og hins vegar þverpólitíska breidd.

Tilnefndu sætunum er hvorki ætlað að þjóna flokkspólitík né styðja einstaka flokka; tilgangurinn er menntunarlegur og samfélagslegur. Þau sem taka þátt í ungliðahreyfingum eru oftar en ekki framtíðarþingmenn, ráðherrar og sveitarstjórnarfulltrúar. Með aðild fá þau vettvang til að dýpka þekkingu sína á málefnum barna og ungmenna. Slíkur bakgrunnur, sem byggir á gagnreyndri þekkingu, hefur jákvæð áhrif á framtíðarumræðu um velferð barna í íslensku samfélagi, óháð flokkspólitískum tengslum.

Sætin eru í boði fyrir ungliðahreyfingar allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi, þar sem ungliðahreyfingar stjórnarflokka eiga forgang. Eftirstandandi sæti bjóðast ungliðahreyfingum stjórnarandstöðuflokka í hlutfalli við fjölda þingsæta móðurflokkanna. Sé boði um sæti hafnað eða því ósvarað, stendur sætið autt.

Sjálfstæði stjórnarmanna

Allir stjórnarmenn starfa sem sjálfstæðir fulltrúar samtakanna samkvæmt 15. gr. samþykkta, og bera þannig ábyrgð á því að taka ákvarðanir sem best þjóna hagsmunum barna og ungmenna, óháð utanaðkomandi hagsmunum. Fulltrúar ungliðahreyfinga eru ekki bundnir af stefnu flokka sinna á stjórnarfundum, heldur er hlutverk þeirra samkvæmt samþykktunum að þjóna hagsmunum barna. Nánari upplýsingar má finna í samþykktum samtakanna (A2.1) og hagsmunaárekstrastefnu (A2.4).

Ábyrgðarsvið

Verksvið stjórnar.

Stefnumótun

Stjórn setur meginstefnu samtakanna, staðfestir starfsáætlun og fjárhagsáætlun, og metur árangur af starfseminni.

Eftirlit

Stjórn hefur yfirumsjón með daglegum rekstri, fer yfir mánaðarlegar skýrslur framkvæmdastjóra og ber ábyrgð á því að starfsemi sé í samræmi við lög og samþykktir.

Fjármál

Stjórn samþykkir fjárhagsáætlun, hefur eftirlit með rekstrarstöðu og tryggir að ársreikningur sé endurskoðaður og gefinn út opinberlega.

Siðferðileg viðmið

Stjórn ber ábyrgð á siðareglum og kvörtunarferlum, og fer með úrvinnslu tilkynninga er varða starfsmenn og stjórnarmenn.

Stjórnarfundir eru haldnir að lágmarki sex sinnum á ári. Framkvæmdastjóri skilar mánaðarlegri rekstrarskýrslu. Skjalið A2.2 · Hlutverk og skyldur stjórnar og nefnda skilgreinir ábyrgðina í heild.

Framkvæmdastjóri

Umsjón daglegs rekstrar.

Framkvæmdastjóri sinnir daglegum rekstri, samskiptum við fjölmiðla og ytri aðila, auk annarra mála sem ekki falla sérstaklega undir verksvið stjórnar. Ábyrgðarsvið framkvæmdastjóra er skilgreint í samþykktum samtakanna ásamt ramma um ákvarðanatöku (A2.3).

Til að viðhalda skýrum aðskilnaði milli daglegs rekstrar og yfirumsjónar stjórnar hefur framkvæmdastjóri ekki atkvæðisrétt í stjórn. Hann hefur hins vegar setu- og tillögurétt á öllum stjórnarfundum til að tryggja upplýsingaflæði og gott samráð.

Alexander Gunnarsson

Framkvæmdastjóri

Alexander Gunnarsson er framkvæmdastjóri HÆ. Hann hefur starfað við að aðstoða fólk í ágreiningsmálum, gagnvart hinu opinbera en einnig vinnuveitendum og öðrum, bæði á Íslandi og í Danmörku: hjálpað því að rata um stjórnsýsluna, sjá hvar réttur þess liggur og velja skynsamlegustu leiðina að honum. Af þeirri vinnu þekkir hann af eigin raun hve miklu þrautseigja skilar. Hann hefur auk þess komið að stofnun fyrirtækja, starfað sem ráðgjafi stjórnmálaflokka við gagnaöflun og kosningabaráttur.

Hann missti systur sína, sautján ára, í kerfi sem náði ekki að grípa hana. Sú reynsla er ástæða þess að hann setti þetta verkefni af stað.

alexander@hagsmunasamtokaeskunnar.is

Fagráð

Ráðgefandi aðili vegna útgáfu og kerfisgreiningar.

Fagráð samtakanna er ráðgefandi hópur skipaður sérfræðingum úr stjórnsýslu, fræðasamfélaginu, lögfræði og, ekki síst, fólki sem vinnur með börnum á gólfinu. Þar er pláss fyrir öll þau sem geta hjálpað okkur að dýpka skilning okkar á kerfinu og greina kerfisbresti. Ráðið yfirfer skýrslur og útgáfuefni áður en það er birt. Aðild er unnin í sjálfboðastarfi og felur ekki í sér ákvörðunarvald um stefnu samtakanna.

Nánar um fagráð →