Samvinna

Við eflum allan geirann.

Málefni barna eru sameiginlegt úrlausnarefni alls samfélagsins. Við lítum á önnur almannaheillasamtök á þessu sviði sem mikilvægustu bandamenn okkar, og það sem við byggjum upp deilum við með þeim.

Við leggjum ríka áherslu á uppbyggilegt samstarf við stofnanir, fagfólk, fræðasamfélagið og ekki síst önnur frjáls félagasamtök. Stuðningurinn hvílir á því sem við byggjum upp fyrir eigið starf: gögnunum, kerfum og þekkingunni. Leiðirnar eru þessar.

Tæknileg aðstoð og gagnamiðlun

Kjarninn í starfi okkar er gagnabanki sem safnar opinberum gögnum um börn á einn stað, hvert atriði rekjanlegt í frumheimild. Þann banka opnum við öðrum samtökum gegnum beina gagnatengingu (API), svo þau geti byggt eigin umsagnir, skýrslur og herferðir á sömu traustu gögnum. Til viðbótar bjóðum við tæknilega aðstoð, tól og greiningar þar sem þeirra er þörf, án endurgjalds fyrir þau sem starfa í þágu barna.

Aðstoð við fjáröflun

Fjáröflun er þung fyrir lítil félög. Fjáröflunarkerfið, sem við þróum fyrir eigin rekstur ásamt samstarfsaðilum okkar, gefum við öðrum félögum án endurgjalds þegar það er fullreynt, ásamt því verklagi sem reynist okkur vel. Þannig þurfa félög ekki að byggja sömu innviði upp frá grunni, heldur geta einbeitt sér að starfinu sjálfu.

Ráðgjöf í gagnaöflun

Mikið af gögnum um börn liggur ekki opið, en upplýsingalög veita rétt til að kalla þau fram. Við munum byggja upp verklag við að sækja gögn á þeim grundvelli, rýna opinber gögn og rata um stjórnsýsluna. Þá þekkingu deilum við með öðrum félögum, svo málflutningur þeirra standi styrkari fótum.

Sameiginleg málsvörn og herferðir

Þegar önnur félög heyja baráttu fyrir tilteknu máli getum við lagt til gögnin og greininguna á bak við það. Við tökum þátt í samstarfsverkefnum og herferðum þar sem rekjanleg gögn okkar geta stutt eða dýpkað baráttumál annarra hópa.

Miðlun sjálfboðaliða

Fólk sem vill leggja málaflokknum lið er dýrmætt. Höfum við ekki verkefni við hæfi hverju sinni aðstoðum við áhugasama sjálfboðaliða við að finna kröftum sínum farveg hjá öðrum samtökum, með þeirra samþykki. Þannig nýtast kraftar fólks í geiranum, líka þegar við höfum ekki verkefni handa öllum.

Þekking og tengsl

Við byggjum upp tengslanet fagfólks og félaga, meðal annars í gegnum fagráð okkar og samstarfsverkefni. Við opnum dyr, deilum því sem við lærum og tengjum saman þau sem vinna að sömu markmiðum.

Þegar þekking, verkfæri og kraftar flæða milli félaga heyrist rödd barna skýrar. Þannig viljum við vinna.